Tuesday, December 2, 2008

Próf, próf og aftur próf :(


Ég er bloggheiminum til skammar!

Love
Ólöf Tinna

Thursday, September 11, 2008

11.sept!






hæ hæ :)
jæja ég er byrjuð í skólanum og það er bara frekar fínt. Eftir þessa önn er ég hálfnuð með bs námið í sálfræði. Það er reyndar ekki mikið nú til dags að vera með bs gráðu en einhvers staðar þarf maður nú að byrja :)  
Ég skellti mér til London um síðustu helgi með fjölskyldunni ;) Mamma og pabbi ákváðu að bjóða okkur systkinunum út þar sem það er kominn langur tími síðan við gerðum eitthvað saman. Hérna kemur smá ferðasaga :
1 dagur:  við lögðum á stað á fimmtudags morgni og vorum komin út um hádegi. Við byrjuðum á því að henda töskunum upp á hótel og svo fór restin af deginum í búðarráp.
2.dagur: við kíktum meira í búðir og núna urðu flottu búðirnar á Bond street fyrir valinu. Ekki var nú mikið verslað þar því að fötin voru auðvitað í dýrari kanntinum. Um kvöldið áttum við pantað borð á Asia de cuba sem er mjög flottur veitingastaður. Þetta er svona fusion staður og maturinn þar var mjög góður. Fékk svínakjöt sem var búið að hægelda í 2 daga takk fyrir hehe......fann reyndar ekki mikinn mun á því og venjulega elduðu svínakjöti!
3.dagur: við byrjuðum á því að sjá þegar skipt var um verðina við Buchinham palace. Reyndar var athöfnin ekki alveg eins og hún átti að vera vegna þess að veðrið var frekar leiðinlegt En síðan fórum við á markaðinn á Portabella road. Ég hef heyrt mikið af sögum um þennan markað en varð fyrir þvílíkum vonbrigðum. Leið eins og ég væri að labba um kolaportið. Um kvöldið áttum við síðan pantað borð á Nobu sem er mjög frægur og fínn japanskur veitingastaður. Matuirnn var góður en ég komst að því þarna að ég fíla alls ekki sushi. Ég var alltof meðvituð um að ég væri að borða hráan fisk. 
4.dagur: þessi dagur fór í að skoða borgina. Við Löbbuðum meðal annars að Big Ben og fórum í London eye og Covent garden. Um kvöldið fórum við á inverskan veitingastað en ég gat ekki mikið borðað því að maturinn var alltof sterkur fyrir minn smekk hehe :)
5.dagur: við áttum flug heim um kvöldið þannig við pökkuðum og kíktum svo aðeins meira í búðir :) Flugið heim var fínt og vélin var stútfull af skotum í skotapilsum sem var bara skemmtilegt :)  Skotarnir eru svo duglegir að styðja sína menn ;)
Svo á næsta laugardag ætlar Agnes að halda party fyrir okkur MR-píur. Það verðum gaman að hitta skvísurnar enda orðið alltof langt síðan við hittumst :)
Foreldrar mínir eiga 26 ára brúðkaupsafmæli í dag :) til hamingu með daginn mamma og pabbi :*
en ég ætla núna að fara læra.....
Ástarkveðjur 
Ólöf Tinna

ps. lét fylgja nokkrar myndir frá sumrinu. Allar af mér, ég um mig frá mér ti mín hehe!!

Wednesday, July 23, 2008

Jeiii.......


Hellú :)

hvað segiði nú gott elskurnar mínar? long time no see hehe.......

sumarið er búið að líða svo hratt að það er ekki einu sinni fyndið. Trúi því bara ekki að það séu komnir rúmir tveir mánuðir síðan ég kláraði vorprófin........en svona er þetta.

Sumarið er búið að vera ansi rólegt hjá mér í ár.....bara vinna, hitta vini, djamm og ræktin hehe.......ég ætlaði að reyna vera dugleg að fara í útilegur í sumar en er enn sem komið er ekki búin að fara í neina :(

EN auðvitað verður kíkt í útilegu um verslunarmannahelgina :) Ég er að fara með nokkrum stelpum úr sálfræðinni og við erum voða litið búnar að plana hvert við ætlum.....við endum örugglega bara á því að elta góða veðrið :D

Ég kíkti aðeins í veiðitúr með fjölskyldunni á síðasta sunnudag. Við fórum í eystri Rangá :) en eitthvað voru fiskarnir tregir við að bíta á hjá mér :( Óli bróðir var aðeins heppnari en ég og fékk 4 fiska :)

en ég ætla ekkert að hafa þetta lengra í bili........

Ástarkveðjur 

Ólöf Tinna



Tuesday, April 22, 2008

Sumarið kemur með blóm í haga....


fussum svei segi ég bara.....verri bloggari en ég finnst ekki...

en ætli ég hendi ekki inn einni færslu svona í tilefni af því að ég var í dag að byrja í upplestrafríi. Undarlegt hvað maður er alltaf duglegur að blogga í prófum hehe....

Ég ætla nú ekkert að vera væla yfir þessum prófum heldur tala aðeins um tímann sem er framundan.....sumarið :) ég get bara ekki beðið eftir því.....þetta á eftir að vera besta sumar í heimi hehe.....við vinkonurnar ætlum að vera duglegar að ferðast um landið og djamma.....ef til vill fæ ég þá í fyrsta sinn á minni ævi að sofa í tjaldi ;) það verður spennandi

Ég ætla að vera vinna á leiskólanum í sumar.....kannski eru ekki bestu laun í heimi þar en vinnan er mjög skemmtileg :) Það verður samt smá skrýtið að vera ekki að vinna í ísbúðinni þar sem ég hef gert það undanfarin 6.ár en ég get nú alls ekki sagt að ég eigi eftir að sakna þess hehe

en þið verðið að kíkja á þetta.....ég dó úr hlátri hehe http://youtube.com/watch?v=93CPo0sBVZc


ástarkveðjur

Ólöf Tinna

Tuesday, February 19, 2008

....

Vá ég er svo ekki að standa mig í þessum blessaða bloggheimi hehe. En jæja batnandi manni er best að lifa og allt það rugl þannig að ég ætla að reyna bæta úr þessari leti minni :)

Á síðasta föstudag fór ég í vísindaferð á Stígamót. Fyrir þá sem ekki vita þá er Stígamót staður fyrir fórnalömb kynferðisofbeldis. Mér fannst mjög gott að koma þarna og kynna mér starfsemi þeirra. Konurnar sem tóku á móti okkur voru æðislegar og manni leið vel hjá þeim. Þær töluðu mikið um starfsemi Stígamóta og komu líka inn á hræðilegar staðreyndir eins og

• flestir sem verða fyrir kynferðisofbeldi sem börn eru á aldrinum 5-10 ára þegar ofbeldið á sér stað.
• Flestir sem ákveða að segja frá kynferðisofbeldi sem þeir hafa orðið fyrir sem börn eru á aldrinum 20-40 ára.
• innan við 10% þeirra sem koma á Stígamót kæra og innan við 10% þeirra sem kæra fá einhvern dóm í sínu máli.

Þetta eru hrikalegar tölur og mér finnst dómskerfið hér á landi alls ekki vera að standa sig. Kynferðisofbeldi er mjög alvarlegt brot gagnvart annari manneskju og það að geranda sé í flestum tilfellum ekki refsað fyrir það er algjör vitleysa. Hver sigur í dómsalnum á þessu sviði er stór sigur og vona ég svo sannarlega að sigrunum fari fjölgandi.

Ég ætla ekkert að hafa þetta lengra um Stígamót en fyrir þá sem vilja þá er heimasíðan þeirra stigamot.is

En núna er kominn tími á svefn.....

Ástarkveðjur

Ólöf Tinna

Sunday, February 3, 2008

Betra seint en aldrei.....:)


Jæja, það er nú orðið soldið langt síðan ég bloggaði síðast þannig ég ætla að koma með smá ferðasögu.....

Laugardaginn 12.janúar fórum ég, Sigga og Villi til London. Þessi ferð var bara geðveik. Ég og Sigga lentum í þvílíku ævintýri þegar við vorum nýkomnar út. Við ákváðum að reyna spara smá pening og taka lestina frá Stansted flugvellinum. Þetta blessaða ferðalag okkar tók 3 klukkutíma því að það þurfti akkurat að vera einhver bilun í lestarkerfinu þennan dag. Eftir að hafa farið í svona 10 lestar þá komust við loksins á leiðarenda. Flugvélin hans Villa fór klukkutíma seinna af stað en hann kom samt eiginlega á sama tíma og við á hótelið. Það var frekar fyndið. Eftir frekar langan diskóblund þá gerðum við okkur sæt og fín og fórum út að borða og á djammið.
Á sunnudeginum vöknuðum við frekar þunn og byrjuðum daginn á því að fara í O2 og ná í miðana okkar á Spice girls. Svo efir það var aðeins kíkt í búðir en síðan fórum við bara aftur upp á hótel til þess að græja okkur fyrir kvöldið. Þetta kvöld var æðislegt. Við fórum á skemmtistað sem heitir Zoo og það var ótrúlega skemmtilegt þar. Við kynntumst íslenskum strákum þar og djömmuðum eitthvað smá með þeim.
Mánudagurinn fór síðan bara í skoðanaferðir um London og chill á hótelinu.
Á þriðjudeginum var síðan hápunktur ferðarinnar, sjálfir tónleikarnir. Spice girls voru bara æðislegar og þær höfðu greinilega engu gleymt. Sigga hágrét alla tónleikana og missti nokkur tár yfir einu lagi. Þetta var rosalegt. Greyjið Villi, skellti sér á Spice girls með tveimur grenjuskjóðum hehe:)
Á þriðjudeginum var síðan haldið heim. Ég og Sigga lentum í enn einu ævintýrinu hérna á Íslandi þegar við komum heim. Okkar vél lenti á undan Villa vél þannig við þurftum að bíða smástund eftir honum. Villi var svo sniðugur að láta okkur hafa lyklana af bílnum sínum þannig að við gætum bara rúntað smá á meðan við værum að bíða. En það hafði snjóað frekar mikið þegar við vorum úti og við byrjuðum á því að pikkfesta lita yarisinn hans Villa sem var btw á sumardekkjum. Við skiptumst á að reyna ýta bílnum en það var nú ekkert að ganga hjá okkur. Á endanum gáfumst við upp og hlupum inn í Leifstöð og báðum um hjálp og þá komu tveir strákar og hjálpuðu okkur. Á meðan greyjið strákarnir voru að hamast við að losa bílinn þá sátum við prímadonnurnar inn í bílnum í hitanum og hlustuðum á tónlist. Svo á endanum losnaði bíllinn og við þökkuðum strákunum fyrir frábæra þjónustu.

Ég set inn fleiri myndir frá ferðinni seinna en ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra núna...

Ástarkveðja :)

Ólöf Tinna

Tuesday, January 8, 2008

2008....


Þá er komið að fyrsta blogginu á nýju ári :) Áramótin voru mjög fín hjá mér. Ronní bróðir hans pabba og fjölskyldan hans komu til okkar í mat og það var mjög gaman. Svo eftir miðnætti hittumst ég, Elina, Þóra og Þuríður heima hjá Þuríði og við byrjuðum að drekka. Eftir nokkuð margra breezera og mikið slúður fórum við niðrí bæ og enduðum á Apótekinu sem er bara hinn fínasti staður.

Þann 2 .janúar voru síðan frekar mikil tímamót í lífi foreldra minna. Þau eru búin að eiga ísbúð vesturbæjar í 12.ár en þann dag afhentu þau nýjum eigendum lyklana. Þau seldu hana í apríl árið 2007 en ráku samt búðina út árið. Mér fannst þetta mjög skrýtið því að ég var bara 9 ára þegar þau keyptu hana og á mjög margar minningar tengdar ísbúðinni. Það var líka frekar fyndið að afhenda hana 2.jan því að mamma og pabbi tóku akkurat líka við henni 2.jan á sínum tíma ;).

Núna fer að styttast í London ferðina geggjuðu!!! Ég hef aldrei komið til London og hlakka því mikið til ;) Ég og Sigga fljúgum saman með Iceland express en Villi fer með Icelandair. Það er soldið leiðinlegt að fara ekki öll saman út en svona er þetta bara......ég og sigga fengum svo góðan díl hjá espress að við ákváðum frekar að fljúga með þeim. Síðan eru Spice girls tónleikarnir 15.jan vúhú.....það verður bara gaman að kíkja á tónleika með þeim ;)

Jæja best að fara gera eitthvað af viti.....heyrumst....

Ástarkveðjur

Ólöf Tinna