Tuesday, February 19, 2008

....

Vá ég er svo ekki að standa mig í þessum blessaða bloggheimi hehe. En jæja batnandi manni er best að lifa og allt það rugl þannig að ég ætla að reyna bæta úr þessari leti minni :)

Á síðasta föstudag fór ég í vísindaferð á Stígamót. Fyrir þá sem ekki vita þá er Stígamót staður fyrir fórnalömb kynferðisofbeldis. Mér fannst mjög gott að koma þarna og kynna mér starfsemi þeirra. Konurnar sem tóku á móti okkur voru æðislegar og manni leið vel hjá þeim. Þær töluðu mikið um starfsemi Stígamóta og komu líka inn á hræðilegar staðreyndir eins og

• flestir sem verða fyrir kynferðisofbeldi sem börn eru á aldrinum 5-10 ára þegar ofbeldið á sér stað.
• Flestir sem ákveða að segja frá kynferðisofbeldi sem þeir hafa orðið fyrir sem börn eru á aldrinum 20-40 ára.
• innan við 10% þeirra sem koma á Stígamót kæra og innan við 10% þeirra sem kæra fá einhvern dóm í sínu máli.

Þetta eru hrikalegar tölur og mér finnst dómskerfið hér á landi alls ekki vera að standa sig. Kynferðisofbeldi er mjög alvarlegt brot gagnvart annari manneskju og það að geranda sé í flestum tilfellum ekki refsað fyrir það er algjör vitleysa. Hver sigur í dómsalnum á þessu sviði er stór sigur og vona ég svo sannarlega að sigrunum fari fjölgandi.

Ég ætla ekkert að hafa þetta lengra um Stígamót en fyrir þá sem vilja þá er heimasíðan þeirra stigamot.is

En núna er kominn tími á svefn.....

Ástarkveðjur

Ólöf Tinna

2 comments:

Anonymous said...

kynferðisofbeldi er grafalvarlegur glæpur og það er náttúrulega fáránlegt að á 21.öldinni erum við að dæma strangari dóma fyrir fíkniefnasmyglara en kynferðisglæpamenn.
En það er löggjafinn sem að þarf að þyngja þessar reglur því að dómsvaldið er búið að vera að dæma á ákveðinn hátt svo að það eru komin dómafordæmi og það getur því ekki "allt í einu" byrjað að dæma öðruvísi. Ef við skorum á löggjafann að þyngja refsingarnar þá getum dómsvaldið gert það einnig...en þangað til eru Alþingismennirnir að tjilla á spáni;)

Anonymous said...

Prósentan af stelpum sem hafa orðið fyrir einhvers konar kynferðislegu ofbeldi/áreitni fyrir 18 ára aldur er 25% að mig minnir. Samsvarandi tala er 8% hjá strákum. Þetta þýðir að það eru góðar líkur á að ef maður er í bekk með 12 stelpum og 13 strákum að 3 stelpur og 1 strákur hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eða verði fyrir kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára. Þetta er alla vega meira en ég bjóst við. Ég held að ég sé að fara með rétt mál. Líka langalgengast að einhver nákominn barninu sé gerandinn - sem er dáldið óþægilegt fyrir foreldra!