
Jæja, það er nú orðið soldið langt síðan ég bloggaði síðast þannig ég ætla að koma með smá ferðasögu.....
Laugardaginn 12.janúar fórum ég, Sigga og Villi til London. Þessi ferð var bara geðveik. Ég og Sigga lentum í þvílíku ævintýri þegar við vorum nýkomnar út. Við ákváðum að reyna spara smá pening og taka lestina frá Stansted flugvellinum. Þetta blessaða ferðalag okkar tók 3 klukkutíma því að það þurfti akkurat að vera einhver bilun í lestarkerfinu þennan dag. Eftir að hafa farið í svona 10 lestar þá komust við loksins á leiðarenda. Flugvélin hans Villa fór klukkutíma seinna af stað en hann kom samt eiginlega á sama tíma og við á hótelið. Það var frekar fyndið. Eftir frekar langan diskóblund þá gerðum við okkur sæt og fín og fórum út að borða og á djammið.
Á sunnudeginum vöknuðum við frekar þunn og byrjuðum daginn á því að fara í O2 og ná í miðana okkar á Spice girls. Svo efir það var aðeins kíkt í búðir en síðan fórum við bara aftur upp á hótel til þess að græja okkur fyrir kvöldið. Þetta kvöld var æðislegt. Við fórum á skemmtistað sem heitir Zoo og það var ótrúlega skemmtilegt þar. Við kynntumst íslenskum strákum þar og djömmuðum eitthvað smá með þeim.
Mánudagurinn fór síðan bara í skoðanaferðir um London og chill á hótelinu.
Á þriðjudeginum var síðan hápunktur ferðarinnar, sjálfir tónleikarnir. Spice girls voru bara æðislegar og þær höfðu greinilega engu gleymt. Sigga hágrét alla tónleikana og missti nokkur tár yfir einu lagi. Þetta var rosalegt. Greyjið Villi, skellti sér á Spice girls með tveimur grenjuskjóðum hehe:)
Á þriðjudeginum var síðan haldið heim. Ég og Sigga lentum í enn einu ævintýrinu hérna á Íslandi þegar við komum heim. Okkar vél lenti á undan Villa vél þannig við þurftum að bíða smástund eftir honum. Villi var svo sniðugur að láta okkur hafa lyklana af bílnum sínum þannig að við gætum bara rúntað smá á meðan við værum að bíða. En það hafði snjóað frekar mikið þegar við vorum úti og við byrjuðum á því að pikkfesta lita yarisinn hans Villa sem var btw á sumardekkjum. Við skiptumst á að reyna ýta bílnum en það var nú ekkert að ganga hjá okkur. Á endanum gáfumst við upp og hlupum inn í Leifstöð og báðum um hjálp og þá komu tveir strákar og hjálpuðu okkur. Á meðan greyjið strákarnir voru að hamast við að losa bílinn þá sátum við prímadonnurnar inn í bílnum í hitanum og hlustuðum á tónlist. Svo á endanum losnaði bíllinn og við þökkuðum strákunum fyrir frábæra þjónustu.
Ég set inn fleiri myndir frá ferðinni seinna en ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra núna...
Ástarkveðja :)
Ólöf Tinna
2 comments:
þú gleymdir að segja frá því að fyrsta kvöldið fórum við á frægasta skemmtistað evrópu og dönsuðum á súlum með dönsurunum þar hehehe :S Sveitt kvöld! En geggjað blogg ég var búin að gleyma að við festum bölvaðan bílinn hehe;) en allt er gott sem endar vel og við enduðum á KFC í KEF haha :)
Þetta hefur verið skemmtilegt ferðalag hjá ykkur þremur, settu endilega fleiri myndir inn;) Þóra B
Post a Comment