
Jæja þá lét ég loksins undan pressu og stofnaði bloggsíðu :) fyndið hvað maður finnur sér alltaf eitthvað annað að gera en læra tölfræði.
Ég hitti siggu í dag og við skelltum okkur aðeins í búðir og út að borða. Hún var að sýna mér geðsjúkan sófa sem hún er að fara kaupa sér, I love it!
Annars er voða lítið að frétta af mér þessa dagana. Bara endalaus próflestur sem virðist engan enda ætla að taka :( Fyrsta jólaprófið mitt er 10. des og það síðasta 21.des. Það er hræðilegt að vera búin svona seint í prófum en svona er þetta bara í háskólanum.
Ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra en enda þetta með nokkrum fyndum staðreyndum um karla og konur sem ég fann á síðunni hennar Sigrúnar .
Konur hafa meðfætt gen sem gerir þeim kleift að muna fyrirhafnarlaust afmælisdaga, heimboð og hátíðleg tækifæri.
Karlmenn hafa enga skoðun á gluggatjöldum.
Þegar einhver kaupir sér nýjan bíl spyrja karlmenn um tegundina, konur vilja fá að vita hvernig hann er á litinn.
Ef þú spyrð konu til vegar þá segir hún þér hvaða verslanir eru á leiðinni, ef þú spyrð karlmenn til vegar þá miðar hann við krárnar.
Konur setja hluti við neðsta þrepið í stiganum til að fara með þá upp í næstu ferð. Karlmenn klofa yfir þá þangað til þeim er sagt að taka þá með sér upp.
Þegar klukkan er orðin tvö eftir miðnætti finnst karlmönnum tilvalið að fara að sofa. Þegar klukkan er orðin tvö eftir miðnætti finnst konum tilvalið að fara að ræða saman um hvernig sambandið sé að þróast.
Karlmenn geta ekið bíl án þess að glápa á sjálfan sig í speglinum.
Konur hafa hæfileika til að láta karlmenn halda að þeir ráði einhverju.
Þegar karlmenn vantar eitthvað biðja þeir um það. Þegar konur vantar eitthvað minnast þær á eitthvað skylt efni og bíða eftir réttu svari.
Karlmenn vilja fá lófatak fyrir að taka úr uppþvottavélinni.
Karlmenn nota orðið ?ég? þegar þeir ættu að segja ?við?. Konur segja ?við? þegar þær ættu að segja ?ég?.
Karlmenn geta sofið þótt hundurinn gelti, barnið gráti eða dyrabjallan hringi.
Konur gætu aldrei fundið upp vopn eða morðtól. Þær mundu finna upp vopn sem léti óvininn fá svo mikla sektarkennd að hann gæfist upp og bæðist afsökunar.
Karlmenn geta ekki samtímis horft á sjónvarpið og talað við konu sína.
Konur geta munað hvernig þær voru klæddar ákveðinn dag fyrir ári síðan, karlmenn muna ekki hvernig þeir voru klæddir í gær nema kíkja á fatahrúguna á gólfinu við rúmstokkinn.
Konur vita hvað á að gera þegar einhver brestur í grát. Karlmenn þurfa allt í einu að skreppa frá.
Karlmenn geta horft á heila kvikmynd án þess að spyrja: Hver er þetta? Hvað var að gerast? Hvað gerir þessi?
Konur fara saman á klósettið. Karlmenn talast ekki við inni á salerninum.
Konum finnst ekki kynæsandi að ímynda sér tvo karlmenn láta vel hvor að öðrum.
Konum er það meðfætt að taka hluti persónulega.
Karlmenn hafa gen sem gerir þeim kleift að halda sjónvarpsfjarstýringunni eins fast og í skrúfstykki meðan þeir liggja í sófanum og góna á innanverð augnlok sín.
Konum finnst skynsamlegt að láta sjónvarpsfjarstýringuna liggja ofan á sjónvarpinu.
Konur horfa á kynþokkafullan karlmann án þess að eftir því sé tekið, karlmenn glápa á fallegar konur og allir taka eftir því.