
hæ hæ :)
jæja ég er byrjuð í skólanum og það er bara frekar fínt. Eftir þessa önn er ég hálfnuð með bs námið í sálfræði. Það er reyndar ekki mikið nú til dags að vera með bs gráðu en einhvers staðar þarf maður nú að byrja :)
Ég skellti mér til London um síðustu helgi með fjölskyldunni ;) Mamma og pabbi ákváðu að bjóða okkur systkinunum út þar sem það er kominn langur tími síðan við gerðum eitthvað saman. Hérna kemur smá ferðasaga :
1 dagur: við lögðum á stað á fimmtudags morgni og vorum komin út um hádegi. Við byrjuðum á því að henda töskunum upp á hótel og svo fór restin af deginum í búðarráp.
2.dagur: við kíktum meira í búðir og núna urðu flottu búðirnar á Bond street fyrir valinu. Ekki var nú mikið verslað þar því að fötin voru auðvitað í dýrari kanntinum. Um kvöldið áttum við pantað borð á Asia de cuba sem er mjög flottur veitingastaður. Þetta er svona fusion staður og maturinn þar var mjög góður. Fékk svínakjöt sem var búið að hægelda í 2 daga takk fyrir hehe......fann reyndar ekki mikinn mun á því og venjulega elduðu svínakjöti!
3.dagur: við byrjuðum á því að sjá þegar skipt var um verðina við Buchinham palace. Reyndar var athöfnin ekki alveg eins og hún átti að vera vegna þess að veðrið var frekar leiðinlegt En síðan fórum við á markaðinn á Portabella road. Ég hef heyrt mikið af sögum um þennan markað en varð fyrir þvílíkum vonbrigðum. Leið eins og ég væri að labba um kolaportið. Um kvöldið áttum við síðan pantað borð á Nobu sem er mjög frægur og fínn japanskur veitingastaður. Matuirnn var góður en ég komst að því þarna að ég fíla alls ekki sushi. Ég var alltof meðvituð um að ég væri að borða hráan fisk.
4.dagur: þessi dagur fór í að skoða borgina. Við Löbbuðum meðal annars að Big Ben og fórum í London eye og Covent garden. Um kvöldið fórum við á inverskan veitingastað en ég gat ekki mikið borðað því að maturinn var alltof sterkur fyrir minn smekk hehe :)
5.dagur: við áttum flug heim um kvöldið þannig við pökkuðum og kíktum svo aðeins meira í búðir :) Flugið heim var fínt og vélin var stútfull af skotum í skotapilsum sem var bara skemmtilegt :) Skotarnir eru svo duglegir að styðja sína menn ;)
Svo á næsta laugardag ætlar Agnes að halda party fyrir okkur MR-píur. Það verðum gaman að hitta skvísurnar enda orðið alltof langt síðan við hittumst :)
Foreldrar mínir eiga 26 ára brúðkaupsafmæli í dag :) til hamingu með daginn mamma og pabbi :*
en ég ætla núna að fara læra.....
Ástarkveðjur
Ólöf Tinna
ps. lét fylgja nokkrar myndir frá sumrinu. Allar af mér, ég um mig frá mér ti mín hehe!!
No comments:
Post a Comment